Bloggað í Barcelona

Monday, March 26, 2007

Montinnlegg manaðarins....

Ætla að monta mig af eftirtöldum atriðum;

*Fékk 9 fyrir síðustu skyrtuna mína (var búin að fá alltaf 8 eða 8,5)
*Er að fara til London á morgun að versla
*Er jafnvel að fara í partý hjá P.Diddy ef við nennum (efast samt um að við nennum)
*Er að fara að sjá Beyonce á tónleikum
*Er að fara að sjá GusGus á tónleikum
*Er að fara að sjá Smashing Pumpkins á tónleikum (ásamt fullt af öðrum kúl böndum)
*Það er alveg að koma sumar hjá mér.
*Fer til Íslands í Apríl
*Fæ fullt af skemmtilegum gestum á næstunni


Þetta var montskammturinn í bili...meira seinna

Margrét montrass

Friday, March 16, 2007

Þetta er eg....



Klikkið á read my visual DNA og svo er svona bók sem þið smellið á :)

Wednesday, March 14, 2007

Það var og...

Ég er með sogblett á hökunni............eftir Powerade brúsa!!!

Sunday, March 04, 2007

Ja ég veit.....

.....lélegur bloggari!!!

En ég ætla að reyna að rifja upp það helsta sem ég er búin að bralla síðustu vikur :)

Ég fór til Sitges um daginn í Carnaval partý og VÁVÁVÁ hvað þetta er magnað. Við erum að tala um huuuuge stóra skrúðgöngu, allir í svaka flottum búningum og jafnvel búnir að æfa dansa og læti. Við stóðum í e-a 3 tíma að horfa á hana labba framhjá. Svo tekur bara við götupartý alla nóttina. Ég fór með Guðný og Jónu og þar sem þetta var á þriðjudegi var upphaflega planið bara að vera stutt. Við misstum af síðustu lestinni og ætluðum þá bara að taka rútu heim. Fórum á meðan við biðum á ströndina í risa partý þar og höfðum það gott. Svo misstum við auðvitað af rútunni. Klukkan 3 fórum við svo í röð fyrir næstu rútu en þá var lestin að byrja að ganga aftur svo við tókum hana og ég kom heim um hálf 6 eða 6 um morguninn..hehe En planið er að fjölmenna á næsta ári og þá verða sko allir í búningum og læti :)
Læt fylgja 2 myndir...tók ekki nema 390 myndir eða e-ð! Á eftir að fara í gegnum þær og setja á myndasíðuna sem b.t.w. er www.flickr.com/photos/magzterinn



Svo helgina eftir var Þorrablótið góða :) Það var svaka stuð, mun betri mæting í fyrra og rosa gaman að fara og borða íslenska matinn og syngja íslensku lögin og svona. E-ð klúðraðist samt í skipulagi happdrættisins þar sem ég hafði ákveðið að vinna fligmiða til Íslands, því það voru 3 slík í boði og það voru bara e-r Spánverja illar sem hirtu þau öll!!! Skandall sko...
En það sem mér fannst best var að það var sko APPELSÍN í boði og malt fyrir þá sem drekka það :P


Svo er nú bara búið að vera rólegt, kíktum á Flanninn á föstudaginn og drógum nýja Jóann með okkur (sem ég veiddi á Barcelona fótboltasíðunni). Halldór og Tony voru frábærir eins og alltaf og við skemmtum okkur rosa vel :)

Líka gaman að monta sig af því að síðustu daga er búið að vera í kringum 25 stiga hiti!!! Ég og Guðný kíktum á ströndina í dag og ég er bara komin með smá lit :)


En já hún Birna á stofunni er búin að unga út æðislega sætri prinsessu :) Til hamingju Birna... :) :) :) Gekk rosa vel hjá henni, fæddist á afmælisdegi bjórsins, 1 mars klukkan 23:22, vóg 3750 grömm og var 52 cm að lengd :)

En já nenni ekki að hafa þetta lengra í bili....
sendi bara sólarkveðju á ykkur, hvar sem þið eruð í heiminum ;)
Besitos
Margrét sólblóm ;D