Bloggað í Barcelona

Friday, September 28, 2007

IS there anybody out there?

Maður spyr sig.....
Ef þú lest þetta blogg nenniru þá að kvitta. Annars held ég að ég fari bara að slútta þessu bloggeríi í bili.

Ciaaooowww
Margrét

Tuesday, September 18, 2007

París, Paris...ja og Island...

Jæja mín er komin heim frá Íslandi og búin að skella mér til Parísar líka ;)
Ég stoppaði nú bara í 5 daga heima áður en ég fór að hitta stelpurnar í París svo ég er ennþá að koma mér fyrir hérna aftur.
En París var æææðisleg, hlakka strax til að fara þangað aftur með kallinn minn.
Við skoðuðum rosa mikið (samt ekki næstum því nog)
M.a. Sacre Couer, Notre Dame, gamli bærinn, listamannahverfið, Louvre, Versali, Sigurboginn, Eiffel turninn ofl. ofl.ofl.
Fórum á Lido á svona Show sem að var alveg svakalega flott...hestar, skautasvell og ég veit ekki hvað og hvað á sviðinu... :)
Stelpurnar kíktu aðeins í búðir og versluðu smá en e-ð var ég nú ekki dugleg að versla, bæti það upp þegar mamma og pabbi koka í heimsókn...hehe
En já, stutt færsla í dag...skelli nokkrum myndum hérna fyrir neðan ;)





Sunday, September 02, 2007

Heimsins latasti bloggari??

Já ég held að það sé ég í augnablikinu.
Ég er ennþá á Íslandi. Fer aftur út á föstudaginn ( 7. sept) og stoppa reyndar stutt því ég ætla svo að skella mér í skvísuferð til Parísar 13. sept. ;)
En já það er búið að vera rosa fínt að kíkja á frónbúana. Reyndar hef ég verið voða lítið að gera, sérstaklega á daginn (allir að vinna..hnuss) En kvöldin alltaf fullbókuð. Frekar skítt að eiga svona mikinn tíma en geta samt ekki hitt alla eins mikið og maður hefði viljað. En svona er lífið :)

Ég hef nú svosem ekki mikið að segja, ætla að skella inn myndum og svona fljótlega svo þið getið séð hvað við höfum verið að bralla á klakanum. Skelli kannski einni hérna svona til gamans.
(tekin í þemapartí þar sem þemað var "pornstars"



Og já ef að þið saknið bloggfærslna frá mér (býst svosem ekki við því þar sem að ég held að það lesi enginn þetta blogg lengur) þá blogga ég líka hérna; www.lestyleblog.com, ásamt nokkrum öðrum.

Later dúúds