Bloggað í Barcelona

Sunday, December 09, 2007

Ég er a leiðinni...

alltaf á leiðinni, til þess að segja þér.......að ég er að koma í næstu viku ;)

Vííííí alveg að koma að þessu. 19. des er dagurinn.

Og já ég byrja meðferðina á morgun. Spennó spennó.

Annars er bara voða lítið að frétta, erum í endalausum matarboðum þessa dagana, svona litlu jól í Barcelona eiginlega. Katla og Edda buðu okkur í íslenska partýskinku ásamt ýmsu mis skrautlegu meðlæti, segi ekki meir...hehe..það var á föstudag. Ég bakaði svo franska súkkulaðiköku í eftirrétt.
Svo fórum við í mat til Karenar og Marc í gær og ég gerði aðra alveg eins köku handa þeim...hehe
Svo erum við að fá Katrínu og Fannar í kvöld en ég er nú að spá í að breyta aðeins um eftirrétt í dag. :)
Annars erum við bara á fullu að læra og kaupa jólagjafir svona inni á milli.

Eníveis.... ég ætla að fara að borða jóladagatalanammið mitt og kveikja á kerti númer 2.....

Smell you later

magzzzzz...

4 Comments:

At 4:17 PM, Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir okkur þetta var án efa upphitun fyrir jólin við erum alveg að springa:) ótrúlega ljúfengt allt saman! Heyrumst fljótt

 
At 6:00 AM, Blogger magzterinn said...

Hehe verði ykkur bara að góðu ;)

 
At 8:49 AM, Blogger Unknown said...

Þu kemur á afmælisdaginn minn :) Jeij :)

 
At 12:36 AM, Anonymous Anonymous said...

Hey, þú kemur til landsins á morgun....jii, en gaman :)
-Tinnz

 

Post a Comment

<< Home