Bloggað í Barcelona

Friday, December 28, 2007

Sprauti sprauti sprauuuti

Jæja þá er ég byrjuð að sprauta mig...vííí

Frekar asnalegt að fagna því en...hehe Getið séð meira um það hérna http://www.barnaland.is/barn/67252

Annars er bara fínt að frétta af okkur. Erum búin að borða allt of mikið síðustu daga. Tvö Jólaboð 25., eitt 26., og eitt 27. og svo er okkur boðið í mat á sunnuda og áramótin eftir líka.....djíííí

Við fengum voða fínar jólagjafir og þökkum kærlega fyrir okkur. :)
Ég er búin að lesa bókina hans Ótta og mér fannst hún bara mjög skemmtileg svo go Ótti bara ;) Mamma fékk hana í jólagjöf svo ég rændi henni í gærdag og er að fara að skila henni núna. Las hana sumsé bara í einum rykk. Það ætti að vera ágætis meðmæli ;)

Annars er ég að reyna að spara bækurnar fram í janúar svo ég hafi e-ð að gera þegar ég má ekki hreyfa mig. Er allt of fljót að lesa nefnilega...hehe Getur verið vandamál stundum.
En jæja ætli sé ekki best að koma sér í Kringluna og gera aðra tilraun til að skipta jólagjöf...var lokað í gær sko.

Annars segi ég bara gleðilegt ár og takk æðislega fyrir þetta sem að er aaalveg að verða búið.

Besos y brazos
Margrétin ykkar

p.s. segi eins og Tinna vinkona mín.... ef þú ert svekkt/ur yfir að hafa ekki fengið jólakort frá okkur þá skaltu bara sleppa því af því að við vorum svo löt að við gerðum engin í ár. En hver veit hvað næsta ár ber í skauti sér....??? Speeennandi ;D

Monday, December 24, 2007

Gleðileg Jol

Langaði bara að óska ykkur gleðilegra jóla. Vonandi eigiði öll eftir að hafa það gott og borða allt of mikið af góðum mat.

Jóla knús frá mér ;*


Tuesday, December 18, 2007

Ísland Island here we come....

Erum að klára að henda í töskur, þrífa og annað sem þarf að gera áður en að við leggjum í hann.
Erum orðin freeekar spennt að koma :) Erum búin að sitja síðustu daga og láta okkur dreyma um allan matinn og nammið og fólkið og og og..... víííí
Það er minna en sólarhringur þangað til við leggjum af stað.

Skelli inn einni fjölskyldumynd svona að ganni.



Sé ykkur

ciao

Sunday, December 09, 2007

Ég er a leiðinni...

alltaf á leiðinni, til þess að segja þér.......að ég er að koma í næstu viku ;)

Vííííí alveg að koma að þessu. 19. des er dagurinn.

Og já ég byrja meðferðina á morgun. Spennó spennó.

Annars er bara voða lítið að frétta, erum í endalausum matarboðum þessa dagana, svona litlu jól í Barcelona eiginlega. Katla og Edda buðu okkur í íslenska partýskinku ásamt ýmsu mis skrautlegu meðlæti, segi ekki meir...hehe..það var á föstudag. Ég bakaði svo franska súkkulaðiköku í eftirrétt.
Svo fórum við í mat til Karenar og Marc í gær og ég gerði aðra alveg eins köku handa þeim...hehe
Svo erum við að fá Katrínu og Fannar í kvöld en ég er nú að spá í að breyta aðeins um eftirrétt í dag. :)
Annars erum við bara á fullu að læra og kaupa jólagjafir svona inni á milli.

Eníveis.... ég ætla að fara að borða jóladagatalanammið mitt og kveikja á kerti númer 2.....

Smell you later

magzzzzz...

Monday, December 03, 2007

Svekk sveeeekkk

Eg á miða á Bread&Butter hátíðina í janúar (sem ég fékk frítt btw) eeeen ég verð á Íslandi :(



(Reyndar að gera rosa skemmtilegt líka...en þúst....ohhh)