Bloggað í Barcelona

Sunday, September 02, 2007

Heimsins latasti bloggari??

Já ég held að það sé ég í augnablikinu.
Ég er ennþá á Íslandi. Fer aftur út á föstudaginn ( 7. sept) og stoppa reyndar stutt því ég ætla svo að skella mér í skvísuferð til Parísar 13. sept. ;)
En já það er búið að vera rosa fínt að kíkja á frónbúana. Reyndar hef ég verið voða lítið að gera, sérstaklega á daginn (allir að vinna..hnuss) En kvöldin alltaf fullbókuð. Frekar skítt að eiga svona mikinn tíma en geta samt ekki hitt alla eins mikið og maður hefði viljað. En svona er lífið :)

Ég hef nú svosem ekki mikið að segja, ætla að skella inn myndum og svona fljótlega svo þið getið séð hvað við höfum verið að bralla á klakanum. Skelli kannski einni hérna svona til gamans.
(tekin í þemapartí þar sem þemað var "pornstars"



Og já ef að þið saknið bloggfærslna frá mér (býst svosem ekki við því þar sem að ég held að það lesi enginn þetta blogg lengur) þá blogga ég líka hérna; www.lestyleblog.com, ásamt nokkrum öðrum.

Later dúúds

3 Comments:

At 8:33 AM, Blogger magzterinn said...

Æjjj nenni ekki að snúa myndinni, þið verðið bara að halla höfðinu til hliðar, já eða snúa tölvunni ;)

 
At 6:11 AM, Anonymous Anonymous said...

Pornstars þemapartí er eitthvað sem ég hefði alveg verið til í að kíkja á.

Annars er ég ekki sáttur við þig þar sem ég missti tölvuskjáinn minn þegar að ég reyndi að snúa honum til að skoða myndina. Núna er stór sprunga í honum.

 
At 3:07 PM, Blogger magzterinn said...

úbbsss sowwy...... :/




*fliss*

 

Post a Comment

<< Home